Þjónusta hjá Advania
Reynsla
Reynsla okkar nær yfir alla þætti frá greiningu og hönnun til þróunar, prófana og áframhaldandi þjónustu. Við höfum unnið flóknar samþættingar, sérsmíði, gagnaflutninga og uppfærslur, auk þess að styðja notendur í daglegri notkun kerfisins.
Vottanir
Starfsmenn okkar eru með fjölbreyttar Microsoft-vottanir sem staðfesta bæði tæknilega sérfræðiþekkingu og djúpan skilning á D365 F&O. Vottanirnar tryggja að við uppfyllum bestu starfshætti og fylgjum nýjustu leiðbeiningum Microsoft.
Fjölbreyttur hópur
Teymið okkar samanstendur af hópi sérfræðinga með fjölbreytta sérþekkingu og bakgrunn. Þessi fjölbreytni gerir okkur kleift að nálgast verkefni heildrænt, skilja þarfir ólíkra notendahópa og byggja upp hagnýtar og traustar lausnir.
Áhugi
Við höfum áhuga á því að hjálpa viðskiptavinum að ná raunverulegum árangri og nýta tæknina á sem skilvirkastan hátt. Við erum lausnamiðuð og höfum metnað til að finna bestu leiðina fyrir rekstur viðskiptavina.