Tollafgreiðsla á innfluttum vörum
Tollafgreiðsla
Fyrirtæki sem flytja vörur til landsins skulu greiða af þeim aðflutningsgjöld í samræmi við ákvæði tollskrár. Með því að nota Advania Tollkerfi í F&O er hægt að stofna aðflutningsskýrslur sem uppfylla kröfur yfirvalda.
Einföld skráning
Advania Tollkerfi er samtengt öðrum kerfiseiningum F&O sem lágmarkar handinnslátt og flýtir fyrir stofnun. Við bókun á tollskýrslu eru innkaup reikningsfærð og kostnaðarverð á vörum uppfært.
Upplýsingar í rauntíma
Upplýsingar um stöðu tollskýrslu, svör frá tollstjóra, álögð gjöld og verðútreikning eru aðgengilegar í rauntíma. Ferlið frá stofnun tollskýrslu til bókunar hennar er einfalt og fljótlegt.
Rafræn samskipti
Advania Tollkerfi í F&O býður upp á rafræn samskipti, EDI, við tollayfirvöld á Íslandi. Tollskýrslur eru sendar úr F&O til tollafgreiðslu og svör vegna tollskýrslu berast frá Skattinum til baka inn í F&O og uppfæra tollskýrsluna.