Dynamics 365 F&O
F&O samanstendur af tveimur einingum, Finance og Supply Chain Management. Það sameinar marga kerfishluta, svo sem fjármál, aðfangakeðju, framleiðslu, verkbókhald og viðskipti, eykur skilvirkni og auðveldar sjálfvirknivæðingu ferla.
Samtenging og sjálfvirk bókun milli ferla innan F&O tryggir raungögn á rauntíma á einum stað. Úthlutuð verkefni, hlutverkamiðaður aðgangur og vinnusvæði veita starfsmönnum yfirsýn í rauntíma og skjótan aðgang að lykilverkefnum. Með innleiðingu samstæðuviðskipta er hægt að straumlínulaga viðskipti á milli lögaðila, minnka villuhættu og draga úr handavinnu starfsmanna.
Engin tækniskuld
Dynamics 365 Supply Chain Management
Dynamics 365 Supply Chain Management leggur áherslu á aðfangakeðjuna og birgðastjórnun.
Undir Dynamics 365 SCM falla stjórnun innkaupa, birgða, flutninga, stjórnun vöruhúsa, ferli vöruhúsa og áætlanagerðar fyrir innkaup og framleiðslu sem tryggir betra flæði, lægri kostnað og aukið rekstraröryggi. Innan Dynamics 365 SCM eru að auki öflug verkfæri fyrir pöntunar- og reikningastjórnun, viðhald og rekstur eigna, framleiðslu, stjórnun framleiðslugólfs og verkbókhald. Innbyggðar spár og AI-studd innsýn sem styðja við betri áætlanagerð og árangursstjórnun.
Dynamics 365 Finance
Dynamics 365 Finance er mjög sveigjanlegt kerfi sem hjálpar notendum að bæta fjármálastjórnun, áætlanagerð og árangursmælingar með nútímalegum verkfærum á borð við gervigreind (AI) og viðskiptagreiningu (BI).
Dynamics 365 Finance inniheldur meðal annars aðalbók, viðskiptaskuldir, viðskiptakröfur, fjárhagsáætlanir, sjóðsstýringu, fastafjármuni, kostnaðarbókhald og fjárhagsuppgjör.