Ástríða fyrir lausnum sem skapa virði
Með krafti, fagmennsku og ástríðu fyrir góðum rekstri hjálpum við fyrirtækjum að þróast, vaxa og ná forskoti. Teymið leggur metnað sinn í að vinna að innleiðingum og þjónustu þar sem hagur viðskiptavinarins er hafður að leiðarljósi. Teymið er fjölbreytt og með ólíkan bakgrunn. Þessi breidd gerir okkur kleift að sjá heildarmyndina, greina flöskuhálsa og finna lausnir sem henta bæði rekstri og tæknilegum kröfum.
Það hvetur okkur áfram að geta mótað lausnir sem einfalda ferla, styrkja rekstur og gera fyrirtæki betur í stakk búin fyrir framtíðina. Áhugi okkar snýst ekki aðeins um tæknina heldur um að tryggja að kerfið nýtist vel í daglegum rekstri og skapi raunverulegt virði fyrir fólk og fyrirtæki.
Upplýsingaöryggi
Advania er vottað og vinnur samkvæmt ISO27001 öryggisstaðlinum. Staðallinn setur fram skýrar kröfur um verklag, áhættumat og öryggisstýringar. Advania leggur áherslu á ábyrga meðferð upplýsinga og stöðuga umbótamenningu í öryggismálum.
Tölum saman
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.