Samþykktarferli
ExFlow er lausn sem sjálfvirknivæðir reikningavinnslu innan F&O. Hún einfaldar samþykktarferli, eykur yfirsýn og tryggir nákvæmni í bókhaldi með fullri samþættingu við viðskiptakerfið. Lausnin hjálpar fyrirtækjum að spara tíma og kostnað, draga úr villum og auka öryggi í fjármálastjórn.
Sérhönnuð lausn
ExFlow frá SignUp Software er sérhönnuð lausn sem viðbót við Dynamics 365 Finance and Operations til að sjálfvirknivæða og einfalda reikningavinnslu.
Lausnin er innbyggð í F&O og nýtir lykilhluta eins og viðskiptaskuldir, verkflæði, lánardrotta og fjárhag til að tryggja skilvirkni og öryggi í fjármálastjórnun. Lausnin nýtir einnig mannauðshluta kerfisins, m.a. skipuritið, til að vinna með í samþykktarferlum.
Öryggi
Með ExFlow geta fyrirtæki:
- Sjálfvirknivætt móttöku og skráningu reikninga sem dregur úr handvirkri vinnu og fækkar villum.
- Stjórnað samþykktarferlum með verkflæðum, þar sem ferlar eru skilgreindir og rekjanlegir.
- Byggt á sömu hlutverkum og aðgöngum í uppsetningu D365 F&O.
- Tryggt samræmi og öryggi í greiðslum með beinni tengingu við viðskiptaskuldir og fjárhag sem tryggir rétta bókun og greiðslu.
- Fengið rauntíma yfirsýn yfir stöðu reikninga og samþykktarferla með innbyggðum Power BI skýrslum, sem auka gagnsæi.
Tölum saman
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.