Advania Tollkerfi
Tenging er á milli Tollkerfis og annarra kerfiseininga innan F&O sem tryggir að ekki þarf að tvískrá upplýsingar. Tollskýrslur eru tengdar innkaupapöntunum og vöruskrá auk þess að halda utan um tengdan kostnað. Notandi er leiddur í gegnum nauðsynleg skref við útfyllingu tollskýrslu. Grunnuppsetning tollkerfis og tollskrá tryggja villuleit og útreikning tolla/gjalda.
Við bókun tollskýrslu er kostnaði ásamt tollum og gjöldum dreift á vörur sendingarinnar og rétt birgðavirði innhreyfinga þannig tryggt.
Við bókun á tollskýrslu eru innkaup reikningsfærð, kostnaður gjaldfærður og kostnaðarverð á vörum uppfært.
Heildarkostnaður
Viðbótartenging er til frá tollkerfinu við stöðluðu kerfiseininguna Heildarkostnaður innan Dynamics 365 SCM. Með virkjun á þessari tengingu er hægt að halda utan um ferðir skipa og gáma í ferðum. Innihald gáma í sendingu er þá þekkt, hægt er að halda utan um stöðu á gámum, flutning á þeim og móttöku. Með þessari viðbót er aukið yfirlit yfir vörur á leið í móttöku, auðvelt að rekja stöðu og staðsetningu gáma og halda utan um mismun í móttöku.
Almennt
Advania Tollkerfi í F&O er vottað af yfirvöldum og er uppfært reglulega miðað við breytingar á reglugerðum og lögum um tollafgreiðslu. Markmið okkar er að einfalda skráningu sendinga og auðvelda vinnu viðskiptavina okkar. Starfsmenn Advania hafa áratuga reynslu af þróun og þjónustu við tollkerfi.
Tölum saman
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.