Advania Lausnapakki

Íslenskar sérlausnir fyrir íslenskar aðstæður

Við auðveldum þér lífið á rafrænan hátt

Innbyggð lausn
Advania Lausnapakkinn er innbyggður inn í F&O og vinnur hnökralaust með öðrum kerfiseiningum innan F&O.
Íslenskur rekstur
Advania Lausnapakkinn tekur á þáttum í rekstri fyrirtækja sem eru sérstakir fyrir íslenskt rekstrarumhverfi.
Aukin skilvirkni
Advania Lausnapakkinn býður upp á tengingu við þjóðskrá, rafræn skil á verktakamiðum og VSK skýrslu til skattstjóra. Markmið viðbótanna er alltaf aukin skilvirkni.
Byggt á reynslu
Advania Lausnapakkinn er þróaður af reynslumiklu teymi Advania. Við þróun lausnarinnar er þétt samvinna við viðskiptavini innan F&O og tekið tillit til óska þeirra.

Þjóðskrá

Við stofnun viðskiptavina, lánardrottna og starfsmanna er með Advania Lausnapakkanum hægt að sækja upplýsingar tengdar kennitölu, svo sem nafn, heimilisfang og VSK-númer lögaðila, úr þjóðskrá. Einnig er hægt að uppfæra breytingar sem verða til dæmis á heimilisföngum til að tryggja að ávallt séu réttar upplýsingar á viðskiptavinum og lánardrottnum.

Boðið er upp á að sækja upplýsingar eftir þörfum með vefþjónustu til Þjóðskár Íslands. Einnig er boðið upp á að sækja heildarafrit þjóðskrár til Advania en þetta er nýjung í kerfinu.

Verktakamiðar

Rekstraraðilum ber að skila árlega inn verktakamiðum (RSK 2.01) til ríkisskattstjóra vegna greiðslna til verktaka. Um árabil hefur ríkisskattstjóri boðið upp á rafræna móttöku verktakamiða. Advania Lausnapakkinn sér um að taka saman upplýsingar um verktakagreiðslur úr F&O og senda þær rafrænt til  RSK.

Rafræn skil virðisaukaskatts

Lausnin einfaldar skil á virðisaukaskattskýrslu til RSK, þar sem það er gert rafrænt í stað þess að handslá upplýsingar inn á heimasíðu RSK.

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.