Advania Bankalausnir
Með skilvirkni og öryggi að leiðarljósi hefur Advania þróað rafræn bankasamskipti beint úr Dynamics 365 F&O. Lausnin er framlenging á stöðluðum kerfiseiningum, gögn eru sótt og/eða uppfærð í rauntíma í gegnum bankalausnina sem veitir skýra yfirsýn yfir stöðu viðskipta á hverjum tíma.
Innheimta
Innheimta reikninga og viðskiptakrafna er mikilvægt ferli. Með Advania Bankalausninni er hægt að mynda kröfur bæði sjálfvirkt og handvirkt. Kröfur eru sendar rafrænt í banka til innheimtu og greiðslu. Beint úr F&O er hægt að vinna áfram með kröfur, til dæmis sækja svör við kröfum, fella niður kröfur og sækja greiðslur. PEI greiðslulausn í Advania Bankalausnum gerir notendum kleift að senda kröfur sem eru komnar fram yfir eindaga og bjóða viðskiptavinum að greiða hjá PEI greiðsluþjónustu.
Bankalausnin inniheldur einnig greiðslukortalausnir fyrir Valitor, Borgun, Straum og Verifone sem gerir fyrirtækjum kleift að vinna með kortaviðskipti, endurgreiðslur til viðskiptavina inni í F&O á öruggan og skilvirkan hátt. Auk þess er hægt að senda viðskiptavinum greiðsluhlekk beint úr kerfinu.
Einnig er boðið upp á rafræna tengingu við innheimtuþjónusturnar Motus og Inkasso í Advania Bankalausninni, þannig er til dæmis sýnilegt á viðskiptavini hvort hann sé kominn í milliinnheimtu eða löginnheimtu.
Greiðslur lánardrottna
Greiðslur til innlendra og erlendra lánardrottna eru unnar í gegnum greiðslubók í F&O. Advania Bankalausnin býður upp á að senda greiðslur beint úr greiðslubók til banka. Engin bið er á að greiðslur berist til banka og skilvirkni eykst til muna. Þar sem ekki þarf að handslá inn upplýsingar til að greiða kröfur minnkar villuhætta og viðskiptin verða öruggari.
Veldu skilvirkni
Advania Bankalausnin auðveldar vinnu á mörgum stöðum í kerfinu. Að gengi dagsins sé lesið inn sjálfvirkt tryggir réttar upphæðir í bókunum og fækkar leiðréttingum. Afstemming bankareikninga og færsluyfirlit sjá til þess að staða reikninga er alltaf rétt. Boðið er upp á að opna eða loka viðskiptavinum með sjálfvirkum keyrslum út frá skilyrðum sem fyrirtæki velja sjálf. Advania Bankalausnin býður líka upp á samskipti við Creditinfo til að tryggja réttar ákvarðanir þegar stofnað er til viðskipta.
Hafðu endilega samband við okkur ef þú hefur áhuga á að kynna þér lausnina betur.
Tölum saman
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.