Við sóttum Dynamics Minds 2026 í Portorož
Starfsfólk okkar sótti nýlega alþjóðlegu ráðstefnuna Dynamics Minds 2026, sem haldin var í fallega strandbænum Portorož í Slóveníu. Ráðstefnan er ein af stærri viðburðum í Evrópu fyrir þá sem starfa með Microsoft Dynamics 365 og tengdum lausnum og laðar að sér sérfræðinga, samstarfsaðila og viðskiptavini víðs vegar að.
Gunnur Jónsdóttir
Forstöðumaður, Viðskiptalausnir
Nýjungar og áherslur
Á ráðstefnunni var lögð áhersla á þróun í kringum gervigreind og hvaða stefnu Microsoft er að taka til að styðja við notendur Dynamics 365 og samstarfsaðila sína. Þá var einnig mikið rætt um prófanir og sjálfvirknivæðingu þeirra í núverandi umhverfi sem uppfært er reglulega. Fjölmargar áhugaverðar kynningar fóru yfir hvernig fyrirtæki geta nýtt sér:
- Copilot Cowork (stafrænan vinnufélaga) frá Microsoft.
- Betri innsýn með gagnagreiningu og AI.
- Lausnir sem auka skilvirkni í rekstri, prófunum og í innleiðingum.
Einnig mátti sjá margar áhugaverðar viðbætur við Dynamics 365 F&O sem geta nýst mismunandi þörfum fyrirtækja.
Dýrmætt net og samtal við sérfræðinga
Einn stærsti ávinningur ráðstefnunnar var tækifærið til að hitta annað fagfólk úr greininni. Slíkir viðburðir skapa vettvang fyrir samtal um raunverulegar áskoranir, lausnir og reynslu sem nýtist beint í verkefnum hjá viðskiptavinum.
Við áttum góð samtöl við samstarfsaðila og framleiðendur lausna, fengum innsýn í komandi þróun og deildum okkar eigin reynslu úr verkefnum.
Þekking sem skilar sér heim
Þátttaka í ráðstefnum sem þessum er mikilvægur hluti af því að tryggja að við séum ávallt með nýjustu þekkingu og getum veitt viðskiptavinum okkar bestu mögulegu ráðgjöf og lausnir.
Við komum heim með nýjar hugmyndir, aukinn innblástur og skýrari sýn á hvernig við getum haldið áfram að byggja upp öflugar framtíðar Dynamics 365 lausnir.