Víðtæk vörustjórn
Heildstæð stjórnun á innkaupum, birgðahaldi og birgðaflæði sem tryggir betra jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar og minnkar fjármagn sem er bundið í birgðum. Innkaupa- og efnisþarfaáætlun ásamt eftirspurnarspá og framboðsstýringu auðveldar ákvarðanatöku og tryggir stöðugan rekstur. Betri nýting birgða og skilgreint flæði eykur skilvirkni, sparar tíma og lækkar kostnað. Rekjanleiki á vörum og lotum, gæðastýring og samræmi við reglur sem eykur öryggi og traust í aðfangakeðjunni.
Framleiðsla
Framleiðsluferli með skráningu á fullbúinni vöru þar sem tilgreind er hráefnanotkun, vélatími og aðrir forðar tryggir rétt kostnaðarverð. Skráning í rauntíma og tenging við aðrar kerfiseiningar býður upp á góða yfirsýn yfir kostnað, framgang framleiðslu og magn vöru til ráðstöfunar. Mögulegt er að skipuleggja framleiðslur með framleiðsluáætlun sem tekur tillit til ýmissa færibreyta, svo sem vöruþarfar, vöruþekju, forða og vélatíma. Vel skilgreindir framleiðsluferlar, framleiðsluáætlanir og stjórnun framleiðslugólfs eykur afhendingaröryggi, eykur hagkvæmni og gæði.
Vöruhúsaferlar
Öflug vöruhúsalausn er innbyggð í Dynamics 365 SCM sem vinnur fullkomlega með öðrum kerfiseiningum. Vöruhúsaferlar, svo sem móttaka, tiltekt, talningar og pökkun, eru straumlínulagaðir að þörfum fyrirtækisins. Vel skilgreindir og skilvirkir ferlar lækka kostnað, bæta gæði móttöku og auka afhendingaröryggi. Starfsmenn í vöruhúsi nota handtölvur við dagleg störf sem eykur hraða og minnkar villuhættu. Þar sem vöruhúsaferlin eru samtvinnuð við aðrar kerfiseiningar eru gögn skráð í rauntíma og engin þörf er á flóknum samþættingum milli tölvukerfa.
Advania aðstoðaði við uppsetningu á vöruhúsakerfi hjá CCEP, Coca-Cola Europacific Partner á Íslandi. Hér að neðan er frásögn af verkefninu.
Innkaup og sala
Innkaupaferli samanstendur af beiðnum um tilboð, innkaupabeiðnum, innkaupasamningum, innkaupatillögum og innkaupapöntunum. Sjálfvirk verkflæði auðvelda starfsmönnum vinnuna og tryggja að réttum ferlum er fylgt.
Sala til viðskiptavina flæðir í gegnum sölupantanir og sölutilboð þegar við á. Hægt er að stýra frátektum, afhendingu, dreifingu, verði og afsláttum með uppsetningum. Saman mynda innkaupa- og söluferli öfluga stýringu á birgðaflæði inn og út úr fyrirtækinu.
Verkbókhald
Kerfiseiningin fyrir verkbókhald veitir nákvæma yfirsýn yfir kostnað, tekjur og framvindu verka á einum stað. Með henni má bæta stjórn á verkum, draga úr villum og auðvelda áætlanagerð, tímaskráningu, kostnaðareftirlit og reikningagerð. Betri yfirsýn á stöðu verka auðveldar stjórnendum að taka gagnadrifnar og upplýstar ákvarðanir sem auka líkur á að verk skili arði og standist áætlanir.
Skilvirkni og yfirsýn
Dynamics 365 SCM styður þig í að takast á við flókin verkefni í nútíma aðfangakeðju og býður upp á sveigjanlega nýtingu. Vel skilgreind ferli, nýting á spám og áætlunum auk tækni eykur skilvirkni, lækkar kostnað og tryggir öruggt flæði birgða. Þetta hefur bein áhrif á arðsemi, vöxt fyrirtækja og ánægju viðskiptavina. Rauntímayfirsýn, þar sem allar upplýsingar eru í einu kerfi, styður gagnadrifnar ákvarðanir og veitir forskot. Hafðu samband við okkur ef þú hefur áhuga á að kynnast lausninni betur.
Tölum saman
Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.