Dynamics 365 Finance

Heildstæð skýjalausn fyrir bókhald, viðskiptaskuldir og - kröfur, uppgjör, fastafjármuni og kostnaðarbókhald. Stuðningur við fjárhagsáætlanagerð og spár sem auðveldar langtímastefnumótun og skjótar ákvarðanir.

Við hjálpum þér að einfalda Fjárhagsferlin og ná betri yfirsýn

Frá fjármálagögnum til skýrrar innsýnar

Hvað er Finance?
Dynamics 365 Finance er mjög sveigjanleg skýjalausn sem hjálpar notendum að bæta fjármálastjórnun, áætlanagerð og árangursmælingar með samtengingu við Excel og Power BI ásamt verkfærum eins og gervigreind (AI).
Af hverju Finance?
Lausnin nær yfir breitt svið, allt frá aðalbók til eignakerfis, frá viðskiptaskuldum til viðskiptakrafna og allt þar á milli. Samtengdar einingar sem vinna saman sem ein heild. Fjárhagsbókhald hefur aldrei verið snjallara.
Fyrir hverja?
Dynamics 365 Finance hentar vel fyrirtækjum sem vilja aukið gagnsæi og gott eftirlit með fjárhag og rekstri í rauntíma. Það er góður stuðningur við alþjóðleg viðskipti, flókið regluverk, rekstur margra lögaðila og viðskipti í mörgum gjaldmiðlum.
Mikill ávinningur
Hlutverkamiðuð vinnusvæði með mælaborðum og sjálfvirknivæðing eykur skilvirkni og auðveldar vinnu. Kerfið spáir fyrir um framtíðarárangur og styður gagnadrifna ákvarðanatöku til að efla vöxt fyrirtækja, óháð stærð og þeirri atvinnugrein sem þau starfa í.

Fjármálastjórn

Lausnin sameinar fjármálastjórnun, uppgjör, greiningu og áætlunargerð á einum vettvangi auk lausafjárstýringar og utanumhalds á bankareikningum. Fjárhagsáætlunargerð, spár og rauntímayfirsýn auðvelda stefnumótun og skjóta ákvarðanatöku í vaxandi rekstri.

Innan lausnarinnar er öflug stjórnun og eftirlit með viðskiptaskuldum og viðskiptakröfum sem einfaldar vinnuferla og minnkar áhættu sem skilar bættum árangri í greiðslu og innheimtu skulda. Innheimtu á opinberum gjöldum og skatti er hægt að stýra þvert á kerfiseiningar innan Dynamics 365 Finance.

Eignir og kostnaðarbókhald

Skráning og utanumhald fastafjármuna er auðvelt í Dynamics 365 Finance. Eignakerfið vinnur fullkomlega með öðrum kerfiseiningum innan F&O, svo sem verkbókhaldi, viðhaldskerfi og innkaupum. Viðskipti með fastafjármuni eru leikur einn og kerfiseiningin gefur raunstöðu í yfirlitum og skýrslum.

Innan Dynamics 365 Finance er einnig kerfiseining fyrir kostnaðarbókhald sem inniheldur meðal annars kostnaðarúthlutun, skráningu og greiningu.

Greining og skýrslugerð

Stjórnendur og starfsmenn geta auðveldlega nálgast greiningar og stöðu viðskipta í gegnum hlutverkastýrð vinnusvæði með innbyggðum Power BI skýrslum og fyrirfram skilgreindum yfirlitum. Hver og einn getur aðlagað vinnusvæðin fullkomlega að sínum þörfum með því að bæta við eða fela einingar.

Innan lausnarinnar eru að auki fjölmargar skýrslur og yfirlit sem hægt er að opna til dæmis í Excel, senda í tölvupósti eða prenta út.

Fyrirtæki geta einnig sett upp sérsniðnar fjárhagsskýrslur, án forritunar, sem henta rekstrinum og draga saman nauðsynlegar upplýsingar úr fjárhagsbókhaldi.

Snjallari og sneggri

Dynamics 365 Finance er hannað fyrir vöxt, sveigjanleika og yfirsýn sem gefur stjórnendum tækifæri til að bregðast fyrr við breytingum og taka snjallari ákvarðanir. Lausnin hentar einstaklega vel þar sem mörg fyrirtæki eru rekin saman, alþjóðaviðskipti eru hluti af daglegum rekstri eða rekstur fyrirtækis nær yfir breitt svið.

Reglulega uppfærð skýjalausn tryggir að hún úreldist ekki heldur þróast með nýjustu tækni. Innan lausnarinnar eru fjölmargar kerfiseiningar og fjölbreyttir notkunarmöguleikar og við hvetjum öll sem hafa áhuga á að kynna sér lausnina betur að hafa samband við Advania.

Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.