Dynamics 365 F&O

F&O er öflug viðskipta- og rekstrarlausn í skýinu byggð á nútímatækni sem eykur skilvirkni í rekstri og auðveldar sjálfvirknivæðingu ferla. Lausnin er sveigjanleg og skalanleg sem tryggir stuðning við vöxt og aðlögun að breytingum á rekstri fyrirtækja.

F&O
Við leysum þínar þarfir á skilvirkan hátt með öflugum lausnum

Heildstæð stjórnun fjármála og reksturs

Hvað er F&O?
Alhliða og öflugt viðskiptakerfi sem hægt er að sníða að þörfum hvers fyrirtækis. F&O inniheldur Finance og Supply Chain Management, og er hluti af Dynamics 365 svítunni frá Microsoft. Kerfið var áður þekkt undir nafninu Dynamics AX.
Hvers vegna F&O?
F&O sameinar marga kerfishluta, allt frá fjármálastjórnun og áætlunargerð til framleiðslu og birgðastýringar. Nútímaleg verkfæri á borð við gervigreind (AI) og viðskiptagreiningu (BI) eykur yfirsýn og árangursmælingar.
Fyrir hverja er F&O?
F&O hentar fyrirtækjum sem þurfa heildstæða lausn þar sem rauntímagögn og  góð verkfæri skipta máli. Lausnin hentar vel til að takast á við flókinn eða fjölbreyttan rekstur, alþjóðleg viðskipti eða rekstur margra lögaðila/fyrirtækja.
Af hverju Advania?
Advania er traustur samstarfsaðili í stafrænum umbreytingum. Við sameinum þekkingu á viðskiptalausnum, áratuga reynslu og sterk tengsl við leiðandi tækniumhverfi til að hjálpa fyrirtækjum að ná raunverulegum árangri.

Dynamics 365 F&O

F&O samanstendur af tveimur einingum, Finance og Supply Chain Management. Það sameinar marga kerfishluta, svo sem fjármál, aðfangakeðju, framleiðslu, verkbókhald og viðskipti, eykur skilvirkni og auðveldar sjálfvirknivæðingu ferla.

Samtenging og sjálfvirk bókun milli ferla innan F&O tryggir raungögn á rauntíma á einum stað. Úthlutuð verkefni, hlutverkamiðaður aðgangur og vinnusvæði veita starfsmönnum yfirsýn í rauntíma og skjótan aðgang að lykilverkefnum. Með innleiðingu samstæðuviðskipta er hægt að straumlínulaga viðskipti á milli lögaðila, minnka villuhættu og draga úr handavinnu starfsmanna.

Engin tækniskuld

Regluleg uppfærsla á skýjaumhverfinu tryggir að lausnin staðnar ekki heldur þróast áfram með nýjungum og viðbótum. Rauntímagögn, innbyggð greiningartól og mælaborð með góðri yfirsýn auðvelda og flýta fyrir betri gagnadrifnum ákvörðunum. F&O er hluti af Dynamics 365 svítunni frá Microsoft og tengist hnökralaust öðrum Dynamics 365 einingum og Microsoft Office. Með samþættingu við Power Platform (Power BI, Power Apps og Power Automate) eykst greiningargeta, sjálfvirkni og sveigjanleiki lausnarinnar.

Dynamics 365 Supply Chain Management

Dynamics 365 Supply Chain Management leggur áherslu á aðfangakeðjuna og birgðastjórnun.

Undir Dynamics 365 SCM falla stjórnun innkaupa, birgða, flutninga, stjórnun vöruhúsa, ferli vöruhúsa og áætlanagerðar fyrir innkaup og framleiðslu sem tryggir betra flæði, lægri kostnað og aukið rekstraröryggi. Innan Dynamics 365 SCM eru að auki öflug verkfæri fyrir pöntunar- og reikningastjórnun, viðhald og rekstur eigna, framleiðslu, stjórnun framleiðslugólfs og verkbókhald. Innbyggðar spár og AI-studd innsýn sem styðja við betri áætlanagerð og árangursstjórnun.

Dynamics 365 Finance

Dynamics 365 Finance er mjög sveigjanlegt kerfi sem hjálpar notendum að bæta fjármálastjórnun, áætlanagerð og árangursmælingar með nútímalegum verkfærum á borð við gervigreind (AI) og viðskiptagreiningu (BI).
Dynamics 365 Finance inniheldur meðal annars aðalbók, viðskiptaskuldir, viðskiptakröfur, fjárhagsáætlanir, sjóðsstýringu, fastafjármuni, kostnaðarbókhald og fjárhagsuppgjör.

Fréttir og fróðleikur

Fréttir, businesscentral.advania.is
12.03.2026
Árlegur Viðskiptakerfadagur Advania 2026 fór fram á Hilton í gær. Um 400 gestir mættu þar og sóttu sér þekkingu um fjölbreyttar viðskiptalausnir, nýjungar og tækifæri í stafrænni vegferð fyrirtækja.
Fréttir
11.03.2026
 „Við vildum lausn eða kerfi sem myndi þróast með okkur inn í framtíðina,“ segir Anna Guðný Andersen ferlasérfræðingur hjá Orkuveitunni um af hverju þau völdu Dynamics F&O.
Fréttir, businesscentral.advania.is
16.02.2026
Á Viðskiptakerfadegi Advania þann 11. mars næstkomandi koma saman sérfræðingar Advania, viðskiptavinir og fulltrúar Microsoft til að ræða framtíð viðskiptakerfa, gervigreindar og sjálfvirkni. Viðburðurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og opnar húsið klukkan 12:30.
Sjá fleiri fréttir
Viltu vita meira?

Tölum saman

Viltu vita meira? Sendu okkur fyrirspurn.