Við bjóðum upp á afgreiðslulausnir fyrir ólíkan rekstur
Með afgreiðsluviðbótum Advania færðu heildstæða lausn fyrir sölu, afgreiðslu og greiðslumóttöku í Business Central.
Advania afgreiðslukerfi einfaldar daglega afgreiðslu, Advania léttsala býður upp á hraðvirkt og notendavænt kassaviðmót og greiðsluposatengingar á borð við Advania LS Pay tengingin sér um örugga og samþætta greiðslumiðlun.
Saman skapa þessar lausnir skilvirkt flæði frá afgreiðslu til greiðslu, draga úr handvirkri vinnu og veita betri yfirsýn yfir reksturinn.
Afgreiðsluviðbætur Advania
Advania afgreiðslukerfi
- Býður upp á að taka á móti greiðslum í gegnum staðlaðar sölupantanir í Business Central.
- Ekki er þörf á eiginlega afgreiðslukerfi
- Styður sölu, reikningagerð, kreditreikninga og vöruskil í einu samfelldu ferli.
- Einfaldar utanumhald og uppgjör með skýrri yfirsýn yfir sölu og greiðslur.
- Hentar þeim sem ýmist bjóða upp á reikningsviðskipti sem og staðgreiðslu á vöru og/eða þjónustu.
Advania léttsala
- Hraðvirkt og einfalt kassaviðmót sem styttir afgreiðslutíma.
- Hentar vel fyrir verslanir þar sem þörf er á skjótri afgreiðslu.
- Byggir á stöðluðu Business Central og nýtir því sömu vöru-, verð og viðskiptamannagögn og eru nú þegar í kerfinu.
- Dregur úr handavinnu og minnkar villuhættu.
- Samþættist Business Central hnökralaust
Advania LS pay posatenging
- Samþættir greiðslumóttöku beint við Business Central og afgreiðsluferla fyrirtækisins.
- Dregur úr handvirkri skráningu með sjálfvirkri yfirfærslu greiðsluupplýsinga milli posa og viðskiptakerfis.
- Minnkar villuhættu og tryggir betra samræmi milli greiðslna, bókhalds og söluupplýsinga.
- Hraðar afgreiðslu viðskiptavina með einföldu og hnökralausu greiðsluferli.
- Veitir betri yfirsýn yfir greiðslur og uppgjör í rauntíma innan Business Central.
Diamond samstarfsaðili
Advania hefur hlotið viðurkenningu sem LS Retail Diamond partner árin 2023, 2024, 2025 og 2026 fyrir framúrskarandi árangur sem samstarfsaðili LS Retail.
Advania er stærsti sölu- og þjónustuaðili LS Retail á Íslandi og leika vörur LS Retail lykilhlutverk í lausnum Advania fyrir verslunargeirann. Advania býður upp á heildarlausnir fyrir stórar sem smáar verslanir, hvort heldur sem um er að ræða einfalt afgreiðslukerfi, vefverslarnir, sjálfsafgreiðslu eða stjórnun innkaupa svo eitthvað sé nefnt.
Hvað býður LS Central upp á?
Sjálfs-, snertilaus og hefðbundin afgreiðsla
Býður upp á hefðbundna afgreiðslu, sjálfsafgreiðslu eða blöndu af báðu, með möguleika á að aðlaga þjónustuna eftir staðsetningu.
Viðskiptavinum gefst kostur á að nýta ScanPayGo appið til að skanna vörur og greiða auðveldlega fyrir í farsímanum sínum.
Viðskiptavinum gefst einnig kostur á að panta á netinu og velja hvort þeir sækja í verslun eða fá vöruna senda heim.
Sjálfvirkar endurpantanir
- Dragðu úr vöruskorti á meðan þú heldur birgðarstöðu réttri og lámarkaðu þannig sóun og skemmdir
- Endurnýjaðu vörur með ólíkan líftíma á sem skilvirkastan hátt
- Notaðu sjálfvirkni til að endurpanta nákvæmlega þær vörur sem þú þarft til að hámarkasölu
- Haltu utan um birgðarstöðu í bakendanum og í handtölvum
Vildaraðild og tilboð
- Stilltu verð, tilboð og afslætti miðlægt, kerfið sér svo um að uppfæra alla endapunkta hvort sem er afgreiðslukassa, rafræna hillumiða eða vefverslun.
- Bjóddu viðskiptavinum upp á vildarkjör hvort sem er með stigum, verðlaunum eða sérstökum tilboðum.
- Notaðu skýrslur og greiningartól til að hagræða auglýsingaherferðum
Heildar yfirsýn yfir gögn
- Fylgstu vel með lykilmælikvörðum og taktu betri ákvarðanir með rauntímaskýrslum og innsýni byggðri á gervigreind
- Skoðaðu gögn í rauntíma út á afgreiðslukössum eða upp í aðalsafni, til að tryggja vanræðalausa starfsemi, greiðslur og viðskipti
Samræmd upplifun á milli verslunar og stafrænnar
- Leyfðu viðskiptavinum að versla hvar og hvenær sem þeim hentar með vefverslunarhlutum sem styðja við netgreiðslur, afhendingar í verslunum og heimsendingum
- Bjóddu upp á samræmda og persónulega upplifun á öllum sölustöðum, hvort sem er í verslun eða á netinu.
Samtengt kerfi á milli allra afgreiðslustaða
- Stjórnaðu matreiðslu, eldhúsi, uppskriftum og jafnvel borðaþjónustu með sama kerfi og þú notar í aðra hluti í rekstrinum.
- Fáðu alla þá virkni sem þú þarft í reksturinn, allt frá samþættingu við vigtir og rafræna hillumiða til sjálfvirka afslátta á vörum sem eru að renna út.
Einfaldaðu málið með Shopify
Verslunarkerfið frá Shopify hefur margsannað sig í íslenskum verslunargeira. Kerfið hentar smáum verslunum og fyrirtækjum og býður upp á ýmsa virkni, annað hvort með stöðluðum lausnum eða viðbótum frá úr markaðsstorgi Shopify.
Tenging við Shopify er innifalin í áskriftinni að Business Central.